Fagleg handleiðsla fyrir þá sem vilja vaxa í starfi
Speglun – styrkur – sjálfsþekking
Kristjana Katrín styður fagfólk í að nýta hæfileika sína betur, takast á við áskoranir og byggja upp trausta fagmennsku.
Hvað er handleiðsla?
Handleiðsla er faglegt samtal sem veitir rými til speglunar, dýpri sjálfsskoðunar og þróunar í starfi. Hún snýst um að efla faglegt sjálf, takast á við krefjandi verkefni án þess að bugast, og nýta eigin styrkleika á markvissan hátt.
Hentar sérstaklega fyrir:
Náms- og starfsráðgjafa
Fagfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Allt fólk í störfum þar sem mannleg samskipti eru lykilatriði
Ávinningur:

Minni kulnun
Meiri starfsánægja
Skýrari fagleg sjálfsmynd
Bætt samskipti og ákvarðanataka

En hver er ég?
Ég er handleiðari með diplómu í faglegri handleiðslu, auk MA náms í náms- og starfsráðgjöf, diplómu í jákvæðri sálfræði og hugrænni atferlismeðferð.
Ég bý yfir áralangri reynslu af því að vinna með fólki í námi og starfi – og ég veit að fagmennska krefst ekki bara þekkingar heldur líka stuðnings, sjálfsskoðunar og innri styrks.
Fagleg handleiðsla sem styrkir þig innan frá
með hlýju, næmni og djúpri innsýn
Náms- og starfsráðgjöf
Ég býð einnig upp á faglega náms- og starfsráðgjöf fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem vilja finna styrkleika sína, taka upplýstar ákvarðanir og byggja bjarta framtíð.

Umsagnir
Hvað segja aðrir um mig
Hvað hafa aðrir um mig og handleiðslu að segja.
Hvernig fer handleiðslan fram?
Hafðu samband
Ertu tilbúin(n) að styrkja sjálfa(n) þig í starfi?
Ég hlakka til að heyra frá þér.
