Þú átt skilið
stuðning sem virkar
Í handleiðslu færðu öruggt rými til að styrkja fagmennsku þína og í náms- og starfsráðgjöf færðu leiðsögn til að taka upplýstar ákvarðanir um framtíð þína.


Hvað er handleiðsla?
Fagleg handleiðsla er aðferð sem byggir á samtali. Í gegnum samtal hjá menntuðum handleiðara er unnt að koma auga á leiðir til breytinga. Þessar breytingar geta snúist um nýja nálgun í samskiptum, hæfni við að setja mörk, forgangsraða verkefnum og vinna með eigið frumkvæði. Einnig að efla skilning og vitund um stöðu hins handleidda í starfsumhverfinu.
Ávinningur faglegrar handleiðslu:
Hef ég þörf fyrir faghandleiðslu?
Náms- og starfsráðgjöf
Með náms- og starfsráðgjöf er markmiðið að efla vitund einstaklinga um hæfileika sína og áhuga þannig að þeir geti notið sín sem best í námi og starfi.
Stefna í námi og starfi er ekki alltaf augljós. Þá er gott að átta sig á eigin styrkleikum, færni og áhuga til að eiga hægara með að taka ákvörðun um nám og/eða starf. Oft er þetta spurning um að þora að taka af skarið og taka ákvörðun og fara þá leið sem hugurinn stefnir.
Hvað gerir náms- og starfsráðgjafi?
Veitir ráðgjöf varðandi það að taka ákvörðun og leita leiða. Einnig ráðgjöf varðandi:

Hef ég þörf á að fara til náms- og starfsráðgjafa?
Mat og greining á náms- og starfsfærni
Byrjaðu samtalið
Eitt skref getur breytt miklu.
