Þú átt skilið

stuðning sem virkar

Í handleiðslu færðu öruggt rými til að styrkja fagmennsku þína og í náms- og starfsráðgjöf færðu leiðsögn til að taka upplýstar ákvarðanir um framtíð þína.

Hvað er handleiðsla?

Fagleg handleiðsla er aðferð sem byggir á samtali. Í gegnum samtal hjá menntuðum handleiðara er unnt að koma auga á leiðir til breytinga. Þessar breytingar geta snúist um nýja nálgun í samskiptum,  hæfni við að setja mörk, forgangsraða verkefnum og vinna með eigið frumkvæði. Einnig að efla skilning og vitund um stöðu hins handleidda í starfsumhverfinu.

Ávinningur faglegrar handleiðslu:

  • Aukin starfsánægja. Valdefling í starfi og vellíðan á vinnustað
  • Persónulegur þroski og fagþróun. Efla faglega hæfni í starfi. Að auka gæði þjónustu handleiðsluþega. Að greina á milli starfs og einkalífs,
  • Að takast á við vinnustreitu og álag í starfi. Að bera kennsl á einkenni álags og huga að eigin heilsu og líðan á vinnustaðnum.
  • Stuðningur. Að handleiðsluþeginn skilji betur áhrif tilfinninga, viðhorfa, lundernis og líðanar á eigin störf . Ráðgjöf við lausn verkefna.
  • Samskipti á vinnustað. Skoða vinnustaðamenningu og auka samskiptafærni, starfsánægju og samkennd. Setja mörk í samskiptum.

Hef ég þörf fyrir faghandleiðslu?

  • Ef þig þig langar til þess að efla þig í starfi.
  • Ef þú finnur fyrir streitu og álagi.
  • Ef þú vilt skilja betur eigin viðbrögð og líðan í starfi.
  • Ef þú vilt auka samskiptahæfni á vinnustað.
  • Ef þú vilt efla faglega þróun.

Náms- og starfsráðgjöf

Með náms- og starfsráðgjöf er markmiðið að efla vitund einstaklinga um hæfileika sína og áhuga þannig að þeir geti notið sín sem best í námi og starfi.
Stefna í námi og starfi er ekki alltaf augljós. Þá er gott að átta sig á eigin styrkleikum, færni og áhuga til að eiga hægara með að taka ákvörðun um nám og/eða starf. Oft er þetta spurning um að þora að taka af skarið og taka ákvörðun og fara þá leið sem hugurinn stefnir.

Hvað gerir náms- og starfsráðgjafi?

Veitir ráðgjöf varðandi það að taka ákvörðun og leita leiða. Einnig ráðgjöf varðandi:
  • náms- og starfsval.
  •  námstækifæri
  •  mat á eiginleikum, styrkleikum og áhugasviði
  • áhugasviðsgreiningu
  • gerð ferilskrár
  • fleira sem upp getur komið í samtali við náms- og starfsráðgjafa

Hef ég þörf á að fara til náms- og starfsráðgjafa?

  • Ef þig langar til þess að fara í nám eða breyta um starfsvettvang og veist ekki hvar er best að byrja.
  • Ef þig vantar aðstoð við atvinnuleit.
  • Ef þig langar til þess að skoða hvar áhuginn þinn liggur og hvaða nám og/eða starf hentar þínu áhugasviði.
  • Ef þig vantar aðstoð við gerð ferilskráar og kynningabréfs.
  • Ef þig vantar hugmyndir/ráðgjöf hvernig gott er að undirbúa atvinnuviðtöl.

Mat og greining á náms- og starfsfærni

  • Greining styrkleika og veikleika einstaklinga með tilliti til náms og starfa; fer aðallega fram með  viðtölum við ráðþega
  • Miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum
  • Veitir upplýsingar og ráðgjöf um nám, námskeið, starfsmenntun og starfsval
  • Starfsfræðsla; umsjón með framkvæmd starfsfræðslu í samstarfi við kennara, starfsfræðslufulltrúa og fulltrúa atvinnulífs
  • Námskynningar; skipulag námskynninga innan skólans og undirbúningur og uppfræðsla nemenda fyrir stærri sameiginlegar námskynningar menntakerfisins
  • Gagnasmíð, gagna- og upplýsingasöfnun og viðhald gagnabanka um nám og störf
  • Miðlun og leiðsögn við notkun upplýsinga úr gagnabanka

Byrjaðu samtalið

Eitt skref getur breytt miklu.