Um mig
Náms- og starfsráðgjafi MA, handleiðari og kennari
Ég er Kristjana Katrín Þorgrímsdóttir,
náms- og starfsráðgjafi (MA) með diplómu í faglegri handleiðslu, MA-diplómu í jákvæðri sálfræði, diplómu í hugrænni atferlismeðferð og kennsluréttindi. Á mínum starfsferli hef ég unnið með fólki á öllum aldri – börnum, unglingum og fullorðnum – í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að námi, starfi og lífsgæðum.
Ég hef meðal annars sinnt náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum, kennt íslensku sem annað mál fyrir bæði börn og fullorðna, og sinnt verkefnastjórnun.
Ef þú vilt fá stuðning til að efla fagmennsku þína, takast á við krefjandi verkefni eða nýta hæfileika þína til fulls, þá er handleiðsla góður kostur. Þar fáum við tækifæri til að skoða áskoranir, finna lausnir og styrkja sjálfstraust þitt í starfi – í öruggu og uppbyggilegu samtali.
Vertu hjartanlega velkomin(n) að bóka tíma hér.

